Wednesday, April 6, 2011

mömmu peysa in progress



Hérna er það sem er komið af peysunni/kápunni hennar mömmu.
Myndavélin gerði reyndar eitthvað furðulegt við litina.
Samkvæmt uppskriftinni sem ég er að styðja mig við á flíkin að vera á röngunni, held mér finnist rendurnar flottari á réttunni.
En mamma ræður, þetta er nú einu sinni fyrir hana =)


Saturday, April 2, 2011

dútl

Þessa vikuna var ég að gera kertastjaka með krökkunum í vinnunni.
Við fengum mikið af krukkum gefins og nóg er til af alskyns servéttum til að gera dýrindis kertastjaka.
Ég sá tvær servéttur sem ég var svo hrifin af og bónus feta krukkurnar eru svo skemmtilegar í laginu svo ég ákvað að gera mér tvo kertastjaka sjálf.
Annars ætla ég að púsla á þessu yndæla laugardagskvöldi.

-eva dúttlari

Thursday, March 31, 2011

eitt af uppáhalds



Þetta er eitt BESTA lag allra tíma.
Varð ástfangin við fyrstu hlustun '05
 

Tuesday, March 29, 2011

afmælis sjalið mitt


Ég kláraði fína "afmælis" sjalið mitt fyrir viku.
Prjónaði það úr garninu í færslunu hérna fyrir neðan, Hummingbird og svörtu kambgarni.
Annars er ég byrjuð á svakalegri peysu/kápu á mömmu fyrir 40afmælið hennar í nóv.
Best að byrja á henni sem fyrst þar sem ég er oftast með margt á prjónunum í einu.


Ég er svolítið skotin í nýja sjalinu mínu.

Saturday, March 12, 2011

ammali


Ég átti afmæli á miðvikudaginn, 20 ára afmæli.
Vegna stórafmælisins fékk ég gjafabréf frá vinnufélugum sem er hægt að nota hvar sem er.
Í dag fór ég í Storkinn uppáhalds prjónabúðina mína og splæsti mér í garn með gjafabréfinu sem ég hefði annars ekki tímt að kaupa.
Garnið heitir Hummingbird og er 100% alpaca, sem er eins og draumur í dós við snertingu, svo mjúkt.
Ætla gera úr því sjal.


garnið á fína hesputrénu frá ömmu.

-eva


Monday, March 7, 2011

Blakan mín


Þegar ég nældi mér í einbands heftið frá ístex fitjaði ég um leið uppá litla sjalinu "Blaka"
Enda finnst mér fátt fallegra en fuglar.
Ég notaði auðvitað fallega garnið sem amma litaði,
það sem varð fyrir valinu er litað með krækiberjalyngi.
Blaka er virkilega skemmtilegt sjal sem er aldrei eins svo ég varð ekki leið á því.


-eva elskar fugla

Saturday, March 5, 2011

...& sons



Nokkrir tónar á laugardagskvöldi í boði Mumford & Sons.

-sunshine